Bluff frumsýnt í Zurich

fimmtudagur, 19. nóvember 2009

“Bluff” eftir svissneska danshöfundinn Alexöndru Bachzetsis var frumsýnt í Zurich, 12. nóvember sl. en Saga Sigurðardóttir dansari fer þar með eitt þriggja hlutverka. Saga hefur unnið að verkefninu undanfarna haustmánuði í Zurich ásamt Alexöndu og samdönsurunum Franzisku  Aigner og Gilles Polet auk austurríska tónlistarmannsins Richard Dorfmeister.
Hópurinn sýnir nú Bluff í Basel um þessar mundir, en frekari sýninga er að vænta m.a. í Amsterdam og Mílanó á komandi ári.
Bluff er fjórða verkefnið sem Saga tekur þátt í fyrir Alexöndru Bachzetsis. Þar af hefur kabarett/tónleikaverkið "SOIRÉE" sem frumsýnt var vorið 2008 farið hvað víðast, um Sviss, Frakkland, Belgíu og Þýskaland.

Um nýja afsprengið, Bluff, segir meðal annars :
Hegðun og hreyfingar sem virðast í fyrstu persónulegar, verða kunnuglegar eða allt að því of vanalegar til að vert sé að leika þær eftir, ofnotaðar, jafnvel kaldhæðnar. Spurt er hver sé hugsanleg sjálfstæðisyfirlýsing hvers líkama fyrir sig á okkar tímum og í hvaða formi hún birtist. Bluff er sóló sýning fyrir þrjá dansara sem freista þess að líkamna möguleg svör við spurningunni: Er til sá dans sem skýrir sig sjálfur?

Sjá nánar:
www.alexandrabachzetsis.com

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is