Djammvika hjá ÍD – fjögur ný verk á fjórum dögum

miðvikudagur, 18. nóvember 2009

Dagana 25. til 28. nóvember verður Djammvika hjá Íslenska dansflokknum. Sýnd verða fjögur ný verk í vinnslu eftir framsækna og spennandi danshöfunda sem fara ótroðnar slóðir við sköpun sína og þenja formið. Með Djammviku er Íslenski dansflokkurinn að gefa nýjum höfundum tækifæri til að vinna með flokknum og einnig er þetta vettvangur til að þróa og prófa nýja tækni og aðferðir við sköpunina.

Listafólkið sem ÍD hefur fengið til liðs við sig eru leiklistarmaðurinn Kristján Ingimarsson, Tony Vezich og tvíeykið Steinunn Ketilsdóttir og Brian Gerke en þetta er í fyrsta sinn sem allir þessir listamenn vinna með flokknum. Peter Anderson danshöfundur og dansari hjá flokknum á einnig eitt verk á dagskránni.

Mikil eftirspurn er eftir miðum á Djammviku og nú þegar er uppselt á þrjár sýningar af sex. Tvö verk eru sýnd saman og er þeim skipt niður á sýningu A annarsvegar og sýningu B hinsvegar.

Sýning A: Cardiac Strain (Hjartastreita) eftir Tony Vezich og Shit eftir Kristján Ingimarsson
Sýning B
: Heilabrot eftir Brian Gerke og Steinunni Ketilsdóttur og Kjúklingur í sauðagæru eftir Peter Anderson

Ný sjálendingurinn Tony Vezich hefur verið að þróa með sér sérstakan dans "orðaforða" sem er í grunninn mjög líkamlega krefjandi. Hugmyndin að baki Cardiac Strain er gefin til kynna í heiti verksins segir Tony, „líkamlegu þreki dansarann er storkað svo að hjartslátturinn rýkur upp úr öllu valdi, í lok verksins eru þau algerlega örmagna.“ Áhorfandinn mun ekki aðeins upplifa styrk dansaranna og líkamleg átök heldur sýnir verkið einnig óbilandi þrautseigju mannsins til að takast á við alla þá erfiðleika sem hann kann að mæta.

Shit er nýtt verk eftir leikhúslistamanninn Kristján Ingimarsson en óhefðbundin verk hans hafa hlotið mikla athygli bæði hérlendis sem og erlendis og er hann er þekktur fyrir að nota líkamann á frumlega og sérstæðan hátt í sýningum sínum. Þetta er í fyrsta sinn sem Kristján semur fyrir dansflokk og er því athyglisvert að sjá hvernig leiklistarmaðurinn nýtir sér þetta tækifæri. Kristján vonar að sýningin geti verið hvati og huggun í því hreinsunarferli sem íslendingar eru um það bil að hefja. Um verkið segir Kristján „Shit er sorgleg og átakanleg saga úr þorpi svo langt í burtu frá öllu að enginn hefur stigið þangað fæti né komið þaðan í árhundruðir. Vafnir í hvítt lín standa íbúarnir á stéttinni líkt og trönur sem þerra vængina í sólinni. Enginn man lengur til hvers litli skúrinn á torginu er notaður. Einn morguninn stendur hurðin á skúrnum opin. Það var daginn sem helvíti kom í heimsókn.“

Tvíeykið Brian Gerke og Steinunn Ketilsdóttir hafa skapað og dansað saman síðan árið 2007 og hefur afrakstur þessa samstafs verið hnyttin og kaldhæðin verk, oft á tíðum skemmtilega ýkt en samt persónuleg. Persónurnar sem þau skapa eru fyndnar og kjánalegar á yfirborðinu, en þegar dýpra er kafið þá koma í ljós mannlegir brestir, hræðsla, óöryggi og einmannaleiki. Brian og Steinunn hafa undanfarin 3 ár einvörðungu samið dúetta sem þau dansa í sjálf. Með verki sínu Heilabrot eru þau að taka skref í nýja átt þar sem þetta er í fyrsta sinn sem þau skapa verk fyrir aðra dansara og koma ekki sjálf fram.

Kjúklingur í sauðagæru er nýjasta afurð Peters Anderson fyrir Íslenska dansflokkinn. Peter hefur verið fastráðinn dansari hjá ÍD frá 2001 en hann er fjölhæfur listamaður á sviði dans, myndlistar og kómedíu. Verk Peters eiga rætur sínar að rekja í dansleikhúsið og hafa einkennst af léttleika og kaldhæðni en velta á sama tíma fram dýpri spurningum og jafnvel gagnrýni á umfjöllunarefnið að þessu sinni er „sársauklaust grín“. Það er hinsvegar sköpunarferlið sjálft sem er kjarni þessa verkefnis eða tilraunar. Peter skapaði verkið í samvinnu við dansarana með tækni sem heitir „Já og“ er gjarnan notið við kómedíu spuna. Hugmyndin var að búa til stresslaust, skemmtilegt og jákvætt andrúmsloft fyrir hópinn.

Verkin eru öll sýnd á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. Verð á eina sýningu er kr. 2.450 en sérstakt tilboð er í gangi fyrir þá sem vilja sjá öll fjögur verkin og kostar þá einungis 3.450 kr fyrir báðar sýningarnar. Miðasala er í síma 568 8000 eða á www.id.is

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is