Spiral sýnir í Borgarleikhúsinu
föstudagur, 6. nóvember 2009
Það liggur enginn vafi á því að þegar sjö stúlkur hittast í gleðskap er mikið fjör. "Hjá fröken Carmen" er nýtt verk Spiral Dansflokksins sem segir frá sjö stúlkum sem hittast í heimahúsi óperu dívunar Carmen. Kvöldið tekur á sig ólíkar myndir en stúlkurnar spjalla, syngja, dansa, rífast og sættast allt á einni kvöldstund.
Gianluca Vincentini og Pauline Huguet eru danshöfundar verksins og verður það sýnt í Borgarleikhúsinu 8.nóvember 2009 kl. 14:00. Spiral mun einnig setja upp innsetningarverkið "Að hvolfa sér í verkefni" sem er samstarfsverkefni eins dansara Spiral, Emelíu Antonsdóttur sem var tilnefnd til Grímunnar sem danshöfundur ársins, og myndlistamannsins Viktors Péturs Hannessonar.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Spiral, spiral.is.
Ljósmynd: Steve Lorenz