Black Marrow
fimmtudagur, 5. nóvember 2009
Black Marrow eftir Ernu Ómarsdóttir og Damien Jalet var frumsýnt tuttugasta október á Melbourne international Arts festival og fékk það stórgóðar viðtökur. Uppselt var út úr dyrum á allar 6 sýningarnar í 500 manna sal Malthouse Theater. Verkið var samið fyrir 6 dansara Chunky Move sem er einn einn helsti danshópur Melbourne. Tónlist var eftir Ben Frost og leikmynd og búningar eftir Alexöndru Mein.
Í the Australian, einu stærsta dagblaði Ástralíu segir meðal annars um verkið:
Verkið er sannfærandi og verulega frumlegt dansleikhús sem kannar frumeðlið innan okkar sameiginlegu minninga, helgisiða og lífræði. Átakanlegt og huggandi á sama tíma, lýsir verkið hinu erfiða samlífi jarðar og mannskepnunar.............................
..............Það tekur fyrir fæðingu, dauða, óvirðingu, nútíma viðhorf og undirmeðvitundina, sameinar þetta í stórkostlega átakanlegt verk sem er bæði vitsmunaleg og orkumikil upplifun. Hin hugvitsama kóreógrafía er framkvæmd af fullkomnun, á meðan hljóð og leikmynd hjálpa til að draga fram hinar tilfinningalegu sveiflur og undirliggjandi leyndardóma verksins.
Eamonn Kelly
The Australian