Opinn dagur í Listaháskóla Íslands
miðvikudagur, 4. nóvember 2009
Föstudaginn 13. nóvember nk. verður Opinn dagur í öllum deildum Listaháskóla Íslands og er áhugasömum boðið að koma í skólann og kynnast starfsemi hans.
Í Listaháskólanum verða nemendur og kennarar til viðtals og upplýsingagjafar. Fjölbreytt dagskrá verður í deildum skólans og má þar nefna uppákomur, leiðsögn um deildir og sýningar á verkefnum nemenda.
Jafnframt munu gestir geta fengið upplýsingar um umsóknarferli sem hefjast í janúar og einnig munu nemendur kynna inntökumöppur.
Leiklistardeild verður með opið frá kl. 14.00-18.00. Auk þess sem dansbrautin verður sérstaklega með opið danshús milli 10.00-12.00.