Low eftir Björk Viggósdóttur og Sigríði Soffíu Níelsdóttur sýnt á Sequneces í Listasafni Íslands.
fimmtudagur, 29. október 2009
Verkið "Low" eftir Björk Viggósdóttur myndlistarmann og Sigríði Soffíu Níelsdóttur danshöfund verður sýnt þann 2 nóvember kl 18:00 í Listasafni Íslands.
Einungis þessi eina sýning verður á verkinu en það er partur af Sequences sjónlistahátíðinni.
Í verkinu dansa Hjörtur Jóhann Jónsson annars árs leikaranemi frá Listaháskóla íslands og Sigríður Soffía dansari í innsetningu Bjarkar Viggósdóttur.
Aðgangur er ókeypis.
Í verkinu er unnið með sambræðslu myndlistar og dans en hreyfingar verksins eru unnar út frá völdum erindum úr
Helgakviðu Hundingsbana.
Nánari upplýsingar um verkið má finna á http://sequences.is/?page_id=1766
eða á http://siggasoffia.wordpress.com/
1.
Fyrr vil eg kyssa
konung ólifðan
en þú blóðugri
brynju kastir.
Hár er þitt, Helgi,
hélu þrungið,
allur er vísi
valdögg sleginn,
hendur úrsvalar
Högna mági.
Hve skal eg þér, buðlungur,
þess bót um vinna?"
Helgi kvað:
2.
"Ein veldur þú, Sigrún
frá Sefafjöllum,
er Helgi er
harmdögg sleginn;
grætur þú, gullvarið,
grimmum tárum,
sólbjört, suðræn,
áður sofa gangir.
Hvert fellur blóðugt
á brjóst grami,
úrsvalt, innfjálgt,
ekka þrungið.
3.
Vel skulum drekka
dýrar veigar,
þótt misst hafim
munar og landa!
Skal engi maður
angurljóð kveða
þótt mér á brjósti
benjar líti.
Nú eru brúðir
byrgðar í haugi,
lofða dísir
hjá oss liðnum."
Sigrún bjó sæng í hauginum.
4.
"Hér hefi eg þér, Helgi,
hvílu görva
angurlausa mjög,
ylfinga niður.
Vil eg þér í faðmi,
fylkir, sofna
sem eg lofðungi
lifnum myndag.