Íslenski dansflokkurinn sýnir á Akureyri
fimmtudagur, 29. október 2009
Íslenski dansflokkurinn sýnir þrjú vinsæl og verðlaunuð verk á Akureyri
Sýningar verða föstudaginn 30. og laugardaginn 31. október
Um helgina sýnir Íslenski dansflokkurinn tvær sýningar á Akureyri. Í samstarfið við LA býður Íd norðlendingum upp á þrjú af vinælustu verkum síðustu ára. Þetta er frábært tækifæri fyrir norðlendinga til að kynnast Íslenska dansflokknum betur þar sem sýningin gefur góða mynd af þeirri fjölbreytni sem að einkennir flokkinn.
Verkin sem verða sýnd eru Skekkja eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur sem þau Cameron Corbett og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir dansa, en Lovísa var tilnefnd til Grímunnar 2009 sem besti dansarinn fyrir þetta verk.
Annað verkið á dagsrkánni verður Svanurinn sem er fallegur og erotísku dúett eftir Láru Stefánsdóttir dansaður af Hannesi Egilssyni og Emilíu Benediktu Gísladóttur.
Síðasta á dagksránni verður svo Kvart en þar dansa dansararnir fyrir hver annan líkt og hipp-hopparar á götum stórborga eða ættbálkar í Afríku gera. Við sjáum kraftmikinn og fagran dans við magnaða tónlist eftir finnska tónskáldið Kimmo Pohjonen sem hefur meðal annars unnið með Sigur Rós og Múm. Höfundur Kvart er Norðmaðurinn Jo Strömgren en hann fékk Grímuverðlaunin 2008 fyrir þetta verk. Dansarar í Kvart eru: Aðalheiður Halldórsdóttir, Cameron Corbett, , Hannes Egilsson, Katrín Á. Johnson, Katrín Ingvadóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Steve Lorenz og Emelía Benedikta Gísladóttir sem var valin Besti dansarinn á Grímunni 2008 fyrir sinn þátt í Kvart.
Þetta er viðburður sem enginn dans- eða leikhúsunnandi fyrir norðan ætti að láta fram hjá sér fara. Sýningarnar verða föstudaginn 30. og laugardaginn 31. október í Samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar
Miðasala er í síma 4 600 200 eða á www.leikfelag.is