Fjölskyldusýning Íslenska dansflokksins

miðvikudagur, 21. október 2009

Nú eru síðustu forvöð til að sjá Fjölskyldusýningu Íslenska dansflokksins. Vegna mikillar aðsóknar verður aukasýning og jafnframt síðasta sýningin nú á sunnudaginn 25. október.

Fjölskyldusýning Íd er ávallt litrík og skemmtileg sýning. Að þessu eru sýnd brot úr sex mismunandi verkum og kennir því ýmissa grasa á sviðinu. Meðal annars er sýnt úr verkinu „The Match“ þar sem umfjöllunarefnið er fótbolti, kómísk saga af eldri borgurum sem endar í allsherjar matarslag úr „Endastöð“ og rómantískur og fallegur dúett úr „Svaninum“.

ÍD tók upp á því nýmæli í ár að bjóða nokkrum áhorfendum að koma á sýningar flokksins og skrifa svo gagnrýni um þær í kjölfarið. Það var almennt mikil ánægja hjá fólki með Fjölskyldusýninguna og höfðu tveir af dansgagnrýnendunum meðal annars eftirfarandi að segja:

„…allir gengu út með bros á vör. Við og við heyrði ég barn mæla: Þetta var sko gaman. Ég vil fara aftur!“ Íris Ríkharðsdóttir, 33 ára kynningarstjóri

“Óhætt er að segja að sýningin gerði gott betur en að halda athygli krakkanna sem hlógu og sýndu góðar undirtektir þegar við átti…” Andrés Jónsson, 30 ára verkefnastjóri hjá Icelandair

Sýningin er ætluð allri fjölskyldunni og er markmiðið að kynna nútímadans fyrir fólki og þá sérstaklega yngri kynslóðinni. Þess vegna býður Íslenski dansflokkurinn börnum sem eru 12 ára og yngri ókeypis inn á sýninguna og 13-16 ára fá miðann á hálfvirði (1.725 kr.)

Síðasta sýning er sunnudaginn 25. október kl. 14 á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. Miðasala í síma 568 8000 eða á www.id.is

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is