Black Marrow frumsýnt 20. október

sunnudagur, 18. október 2009

Erna Ómarsdóttir ásamt Damien Jalet frumsýna verkið Black Marrow sem er samið fyrir Chunky Move, einn mikilvægasta dansflokk Melbourne. Tónlist er eftir Ben Frost. Verkið verður frumsýnt á Melbournes International Arts Festival sem er ein stærsta listahátíðin í Ástralíu, The C.U.B Malthouse þann tuttugasta október.

Verk þeirra Ernu og Damiens hafa oft litast af áhuga þeirra á því hvað kom á undan og hvað mun koma á eftir nútíma siðmenningu, einnig af hinni villtu og ótömdu frumkvöt sem brýst út í okkur þegar við þurfum að berjast fyrir tilveru okkar.

Í Black Marrow ákváðu þau að skoða endalok lífs eins og við þekkjum það.Þar eru skoðuð hin djúpstæðu samskipti okkar við plánetuna og mögulega arfleifð siðmenningar sem virðist hafa tapað rótum sínum. Þau grafa niður í frjóa jörð sköpunar, heimsendaspáa og vísindalegra staðreynda í leit að samnefnara fyrir það sem koma skal. Útkoman er olíuþyrstur sölumaður að selja falskar vonir, risaeðlur að drekkja sér í tjörupittum, vélmenni sem hafa tapað forritun sinni, rymjandi völva sem boðar endalokin og grátandi börn sem syrgja það sem áður var. Fannst þeim kjörið að tengja það við verk sem þau sýndu á íslandi fyrir nokkru, þar sem í því verki, Transaquania sem þau unnu í samvinnu við Gabríelu Friðriksdóttur fyrir Íslenska Dansflokkinn í Bláa Lóninu fjölluðu þau um uppruna, þar sem vatnið var vagga lífsins og einskonar ljóstillífun átti sér stað í lóninu sem uppúr risu ýmiskonar kynjaverur.

 

Malthouse Theatre
The C.U.B. Malthouse
113 Sturt Street
Southbank Victoria 3006
Australia
Phone: +61 3 9685 5111

http://www.malthousetheatre.com.au

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is