Félagsmönnum Fíld boðið á félagsfund SL

fimmtudagur, 8. október 2009

Miðvikudaginn 14. október kl. 20 verður félagsmönnum FÍLD boðið á félagsfund Sjálfstæðu Leikhúsanna (SL) á Lindargötu 6 þar sem Dofri Hermannsson fulltrúi SL í leiklistarráði verður á staðnum. Þar gefst félagsmönnum tækifæri til að afla sér upplýsinga og spyrja hann spjörunum úr varðandi verkefnastyrki og samstarfssamninga.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2010 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.

Umsóknir gætu miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma, sbr. 16. gr. leiklistarlaga nr. 138/1998, og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2010 í þessu skyni kann að segja til um.

Umsóknir skulu berast til menntamálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 2. nóvember 2009, á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin og úthlutunarreglur er einnig að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is

http://www.menntamalaraduneyti.is/afgreidsla/sjodir-og-eydublod/menningarmal/nr/1819

Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2009.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is