Leiklistarráð
mánudagur, 21. september 2009
Opnað hefur verið fyrir umsóknir til Leiklistarráðs.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2010 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.
Umsóknir gætu miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma, sbr. 16. gr. leiklistarlaga nr. 138/1998, og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2010 í þessu skyni kann að segja til um.
Umsóknir skulu berast til menntamálaráðuneytis,Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 mánudaginn 2. nóvember 2009.
Eyðublöð og úthlutunarreglur er að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.
Umsóknarfrestur til starfsemi atvinnuleikhópa er til 2. nóvember 2009.