Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
- StaðaDansari
- Sími+354 6916380
- Netfangunnsadans@hotmail.com
- CV Skoða íslenska útgáfu
Ágrip
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir útskrifaðist 2003 frá Konunglega sænska ballettskólanum í Stokkhólmi bæði af ballett- og módernbraut . Á meðan á námi stóð tók hún þátt í fjölda uppfærslna á vegum skólans. Á lokaárinu tók hún þátt í Sænsku Landskeppninni fyrir unga dansara og lenti í 2. sæti.
18 ára gömul starfaði hún með danskompaníi Björn Elisson í Umeå og dansaði þar í verki ("Överlevnadsstrategier") sem hann samdi fyrir þriggja manna hóp sem ferðaðist um alla Svíþjóð.
Árið 2003 dansaði Unnur á Polar Music Prize hátíðinni. Polar Music Price eru virtustu tónlistarverðlaun Svíþjóðar og afhent af Svíakonungi ár hvert. Keith Jarret hlaut verðlaunin þetta ár og samdi Unnur dans við tónlist hans.
Sumarið 2003 dvaldist Unnur í Frakklandi þar sem hún dansaði með Ballet des Jeunes d´Europe-flokknum og tók þátt í fjölda sýninga á hans vegum.
Haustið 2003 lá leiðin heim til Íslands þar sem hún hóf störf með Íslenska dansflokknum. Meðal uppfærslna sem Unnur tók þátt í hjá ÍD voru "Lúna", "Screensaver", "Chicago", "Match" og fleira.
2009 Dansaði Unnur titilhlutverkið í Sölku Völku, sýningu eftir Auði Bjarnadóttur sem m.a. var sýnd í Þýskalandi.
Vorið 2009 dansaði Unnur í “Í Óðamanssgarði”, kóreógraferað af Láru Stefánsdóttur, sýnt í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð í Reykjavík
Unnur hefur verið danskennari hjá Listdansskóla Íslands undanfarin ár auk þess sem hún hefur kennt hjá Sönglist, Dansskóla Guðbjargar Björgvins ofl.
Unnur hefur tekið þátt í eftirfarandi söngleikjum:
- Bugsy Malone í Loftkastalanum
- Chicago í Borgarleikhúsinu
- Fame í Vetrargarðinum
- Grettir í Borgarleikhúsinu
- Gosi í Borgarleikhúsin
- Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu

















