Tinna Guðlaug Ómarsdóttir
- StaðaDansari
- Netfangtinnag_89@hotmail.com
Ágrip
Tinna byrjaði dansferil sinn 4 ára gömul hjá Ballettskóla Eddu Scheving. Þaðan lá leið hennar í Listdansskóla Íslands þar sem hún útskrifaðist af klassískri listdansbraut jólin 2008. Vorið 2009 útskrifaðist Tinna af Náttúrufræðibraut Kvennaskólans í Reykjavík. Haustið 2009 gekk hún til liðs við Spiral dansflokkinn og tók þátt í flestum þeirra verkefnum á þeirri önn. Samhliða því stundaði hún nám í Lífefnafræði við Háskóla Íslands. Eftir ár í því námi hugaði hún að því að dans væri eitthvað sem hún vildi leggja fyrir sig frekar og stundar hún nú 1 árs prepertory nám við Copenhagen Contemporary Dance School í Danmörku.
Tinna hefur farið á ýmis dansnámskeið í ólíkum stílum. Einnig hefur hún tekið þátt í danskeppnum, Unglist og nú síðast Artfart 2010 þar sem hún dansaði með gjörningadanshópnum The Mighty Night Warriorz. Tinna trúir á að lífið sé lærdómur og ætlar að fylgja þeirri speki.





