Sveinbjörg Þórhallsdóttir

Ágrip

Sveinbjörg Þórhallsdóttir hefur sinnt kennslu í nútímadansi og kóreografíu til margra ára og haldið fjölmörg námskeið á menntaskólastigi og háskólastigi við Listdansskóla Íslands,Listaháskóla Íslands sem og í erlendum skólum og á hátíðum. Hún átti þátt í uppbyggingu Nútimabrautar framhaldsdeildar Listdansskóla Íslands, var fastráðinn kennari þar og sinnti fagstjórastöðu um tíma. Sveinbjörg er ein af stofnendum Nútímadanshátíðar Reykjavíkur, tók þátt í uppbyggingu hennar og stjórnun og samdi fyrir hátiðina fjölmörg dansverk Hún hefur samið dansa í leikritum og söngleikjum og séð um sviðsetningu í öllum leikhúsum borgarinnar sem og fjölmargra listviðburða. Sveinbjörg hefur samið fjölda dansverka bæði fyrir nemendur og atvinnudansara og lagt ríka áherslu á framandi samstarf við listamenn úr öðrum listgreinum, innlendum sem erlendum. Útfrá því var fyrirtækið Panic Productions (sjá nánar, panicproductions.is) stofnað af Sveinbjörgu og Margréti Söru Guðjónsdóttur dansara og hefur það fyrirtæki haslað sér völl sem framandi og skapandi fyrirtæki í stöðugri þróun. Verk framleidd af Panic Productions hafa verið sýnd víðsvegar um heiminn og hlotið eftirtekt sem framandi og framsækin “collective” sviðslistaverk Samstarfslistamenn Panic má nefna þýsku leikonuna Önnu TIsmer, Rahel Savoldelli og Jared Gradinger sem öll hafa náð langt sem framúrskarandi listamenn starfandi í Berlín sem og í leik- og dansheiminum um allan heim. Eftir útskrift frá Fontys Dansacademie með meistaragráðu í kórografíu hefur Sveinbjörg verið beðin að skrifa greinar útfrá rannskóknum sínum og má sjá grein hennar Can Creativity Multiply within a Colletive or Devised Theatre?, á vefsíðu panicproductions.is sem hún skrifaði af beiðni ritsjóra hollensku bókarinnar Danswetenschap. Sveinbjörg hefur sinnt ýmsum félagsstörfum,og beitt sér í baráttumálum dansins sem og setið í ýmiskonar nefndum. Hún er í er í félagi Íslenskara listdansara (FILD) og Félagi íslenskra Leikara (FÍL).

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is