Steinunn Ketilsdóttir
- StaðaDanshöfundur
- Sími+ 354 8626023
- Netfangsteinunn_k@hotmail.com
- Heimasíðahttp://www.facebook.com/profile.php?id=650285397
Ágrip
Steinunn Ketilsdóttir útskrifaðist vorið 2005 frá Hunter College með BA próf í listdansi. Síðastliðin tvö ár hefur Steinunn unnið með vini sínum Brian Gerke (Steinunn and Brian) og saman hafa þau samið þrjá dúetta, sem fjalla allir um ástina, kynlíf og sambönd sem þau hafa verið að sýna víðsvegar um Evrópu. Steinunn og Brian vinna nú að nýju verki fyrir Íslenska dansflokkinn sem verður frumsýnt í nóvember 2009. Í New York hafa verk Steinunnar verið sýnd í Dance Theater Workshop og Judson Church á vegum Movement Research og leikhúsinu Dixon Place. Steinunn hefur dansað fyrir Barböru Mahler, Juliette Mapp og Jessicu Winograd. Hún hefur tvívegis tekið þátt í Dansleikhús/samkeppni LR og ÍD og hlaut þriðju verðlaun árið 2006 fyrir verkið Elsku Bróðir,. Steinunn er einn stofnenda UglyDuck.Productions sem stendur fyrir 108 Prototype, sýningar fyrir verk í vinnslu. Steinunn situr í listrænni stjórn Reykjavík Dance Festival og er ritari Félags íslenskra listdansara.