Sigyn Blöndal Kristinsdóttir

  • Staða 
  • Netfangsigyn@pds.is

Ágrip

Sigyn Blöndal steig sín fyrstu dansspor í Dansstúdíói Alice árið 1987, þá fimm ára. Þaðan lá leiðin í Jazzballettskóla Báru þar sem hún tók þátt í öllum nemendasýningum skólans frá 1990 – 2001 og fjölmörgum viðburðum sem honum tengdust, bæði sem nemandi og kennari. Hún fékk dansaradiplóma JSB árið 2000.

Hún var dansari í Queen, Rolling Stones og Eurovision sýningum á Brodway og var í sýningum Dansleikhússins árin 2002 og 2003 í verkum Irmu Gunnarsdóttur og Kartínar Ingvadóttur. Hún tók þátt í uppfærslu Borgarleikhússins á Evu Lunu árið 1993 og var danshöfundur í uppfærslu Kvennaskólans á Cabaret árið 2001. Vorið 2008 samdi hún og stjórnaði dansatriðum í Wake me up sem var sýnt fyrir fullu húsi hjá LA í margar vikur. Hún samdi hreyfingar og dansa fyrir Fúlar á móti sem var sett upp hjá LA veturinn 2009-2010.

Haustið 2005 stofnaði hún sinn eigin danskóla á Akureyri; Point dansstúdíó þar sem 400 nemendur stunda nú dansnám.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is