Ragnheiður S. Bjarnarson

  • StaðaDansari, danshöfundur 
  • Sími+354 6978633
  • Netfangraggybjarna@gmail.com

Ágrip

Ragnheiður útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands með B.A gráðu í samtímadansi af Leiklistarbraut Listaháskóla Íslands vorið 2009. Hún fór í skiptinám í norska leiklistaskólann í Fredrikstad, Academy for scenekunst. Ragnheiður stundaði líka nám við Listdansskóla Íslands og útskrifaðist þaðan af nútímadansbraut árið 2006. Einnig stundaði hún einsöngsnám frá söngskólanum Hjartans mál.

Ragnheiður hefur sótt ýmis námskeið, m.a. alþjóðlegt dansnámskeið í Tortosa og Deltepre á Spáni og námskeið hjá Ballet Akademíunni í Stokkhólmi. Ragnheiður tók þátt í DAMA 1 og DAMA 2 (dance and media art) sem er samnorrænt verkefni sem unnið var á Íslandi, Svíþjóð en aðallega í Finnlandi á árunum 2005 til 2007. Einnig tók hún tók þátt í EMD (music and dance network), alþjóðlegt námskeið fyrir dansara og tónlistarfólk sem haldið var í Turku í Finnlandi haustið 2007. Ragnheiður hefur dansað í verkinu D&D stringendo con fuoco eftir Karenu Maríu Jónsdóttur sem unnið var á vegum danshöfundasmiðju Íslenska dansflokksins.

Ragnheiður er ein af stofnendum Íslensku Hreyfiþróunarsamsteypunnar. Meðal verka sem Hreyfiþróunarsamsteypan hefur sett upp er:

  • Meyjarheftið, sýnt á upphafsári sviðslistarhátíðarinnar artFart 2006. Styrktaraðilar verksins eru: SPRON, Íslandsbanki og Ungt fólk í Evrópu, frumkvöðlastyrkur.
  • DJ Hamingja, sýnt á sviðslistahátíðinni artFart árið 2008. Styrktaraðilar verksins voru Reykjarvíkurborg og Ungt fólk í Evrópu, fumkvöðlastyrkur. Hópurinn fékk tilnefnigu til íslensku leiklistarverðlaunanna, Gríman, sem danshöfundur ársins fyrir DJ Hamingja. Einnig fór hópurinn til PAF (performance art formum) residency í norður Frakklandi til að vinna verkið.
  • Shake Me, sýnt á Reykjavík dance festival haustið 2009. Verkið var styrkt af Prologos, leikritunarsjóði Þjóðleikhússins.

Hreyfiþróunarsamsteypan hefur sett upp mörg minni verk og gjörninga frá árinu 2005. Hópurinn stefnir á uppsetningu á nýju verki hausið 2010.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is