Ólöf Ingólfsdóttir

  • StaðaDansari, danshöfundur 
  • Sími+ 354 8976140
  • Netfangolofingolfs@hive.is

Ágrip

Ólöf Ingólfsdóttir lauk dansnámi frá EDDC (European Dance Development Center) í Arnhem í Hollandi árið 1993 og hefur starfað sem dansari, kennari og danshöfundur síðan. Hún hefur samið nokkur verk fyrir Íslenska dansflokkinn, en flest verka sinna semur hún undir merkjum Ólöf danskompaní. Ólöf hefur tekið þátt í uppsetningum ýmissa leikhópa sem dansari, danshöfundur, aðstoðarleikstjóri og leikstjóri.

Meðal annarra starfa má telja framkvæmdastjórn Kramhússins 1994-96, dansgagnrýni í Víðsjá fyrir Ríkisútvarpið 1998-99, vinnu með verkefnisstjórn 2000 börn í Reykjavík 2000 1999-2000, umsjón með listadagskrá IETM Reykjavík haust 2000 og kennslu við Listaháskóla Íslands og víðar. Ólöf er nú aðjúnkt við leiklistardeild Listaháskóla Íslands, þar sem hún kennir líkamsþjálfun leikaranema og fleira.

Ólöf var í stjórn Félags íslenskra listdansara 1997-2005, þar af sem formaður 2001-2005 og sat þá einnig í stjórn Bandalags íslenskra listamanna. Hún átti sæti í þriggja manna nefnd sem mótaði tillögu að nýrri námsbraut í samtímadansi við Listaháskóla Íslands 2004-2005.

Ólöf er einn af stofnendum Nútímadanshátíðar í Reykjavík (Reykjavík Dance Festival), sem var fyrst haldin 2002 og hefur starfað í verkefnisstjórn hátíðarinnar allt til 2009. Ólöf stofnaði ásamt Steinunni Knútsdóttur leikstjóra Ördansahátíð, sem hefur verið haldin árlega frá 2003.

Ólöf hefur fengið starfslaun úr listasjóði árið 2001 (12 mánuðir), 2002 (6 mánuðir), 2004 (6 mánuðir) og 2008 (6 mánuðir).

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is