Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
- StaðaDansari, danshöfundur
- Sími+354 6905266/ +32 458762617
- Netfangmelkorkasigridur@gmail.com
- Heimasíðahttp://www.facebook.com/melkorkas
Ágrip
Melkorka Sigríður útskrifaðist af klassískri braut Listdansskóla Íslands árið 2006 og lauk stúdentsprófi af listnáms og málabraut Menntaskólans við Hamrahlíð sama ár. Hún lærði danssmíði Amsterdam, School of New Dance Development (SNDO) og samtímadans í P.A.R.T.S (Performing Arts Research and Training studios) í Belgíu.
Melkorka hefur samið ýmis sviðslistaverk og dansað í verkum og innsetningum sem sýnd hafa verið víða í Evrópu. Meðal danshöfunda sem hún hefur unnið með eru Sveinbjörg Þórhallsdóttir, Aitana Cordero, Martin Butler, Nestor Garcia og Wim Vandekeybus. Hún er meðlimur í Íslensku Hreyfiþróunarsamsteypunni sem hefur verið starfrækt frá árinu 2005 og var tilnefnd til Grímunnar sem danshöfundur ársins 2009 og 2010.
Melkorka syngur og spilar á píanó með sviðslistabandinu John sem auk hennar samanstendur af listafólki frá Spáni, Svíþjóð og Þýskalandi.






