María Þórdís Ólafsdóttir
- StaðaDansari, danshöfundur
- Netfangmaria87@mmedia.is
Ágrip
María Þórdís Ólafsdóttir hóf nám hjá Ballettskóla Eddu Scheving árið 1991 – 2000. Síðan var hún 2 ár hjá Klassíska Listdansskólanum og lá leiðin þaðan í Listdansskóla Íslands. Hún útskrifaðist af klassískribraut Listdansskólans vorið 2007 og lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum sama ár. Hún fór eitt ár í Konunglega ballettskólann í Svíþjóð. María Þórdís stundar núna nám á samtímadansbraut Listaháskóla Íslands og mun útskrifast þar 2011.
Hún er ein af stofnendum og meðlimur Homo Ludens ásamt Aude Busson, Ásrún Magnúsdóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Gunnar Karel Másson, Hlynur Páll Pálsson, Ingibjörg Huld Haraldsdóttir, Oddur Júlíusson, Ólöf Haraldsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Ævar Þór Benediktsson. Hópurinn hóf störf við lokaverkefni Hlyns Páls Pálsonar úr fræði og framkvæmd, með verkið Homo Absconditus. Verkið fór á Lokal 2009. Sumarið 2010 sýndi hópurinn Fjöltengi á ArtFart.
Dans og leiksýningar sem María Þórdís hefur tekið þátt í:
Gyðjan í Vélinni eftir Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur 2007.
Barnafossar eftir Helenu Jóns 2010 á Listahátíð Reykjavíkur.
Killing Time eftir Tony Vezich 2009.
Er núna að vinna verk með Íslenska dansflokknum. Verkið heitir Transaquania – Into Thin Air. Höfundar verksins eru Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir.
Between, stuttmynd hennar og verður hún sýnd á Cinedans festival í Amsterdam 2010






