Margrét Bjarnadóttir

  • StaðaDanshöfundur 
  • Sími+ 354 8496832
  • Netfangmaggabjarna@gmail.com

Ágrip

Margrét Bjarnadóttir lauk BA gráðu af danshöfundabraut ArtEZ listaháskólans í Arnhem, Hollandi, árið 2006. Síðan þá hefur hún unnið sem sjálfstætt starfandi danslistamaður. Af verkum hennar má m.a. nefna útvarpsdansverkið Einn þáttur mannlegrar hegðunar sem unnið var í samstarfi við Íslenska dansflokkinn og Hlaupanótuna á Rás1 og flutt var í beinni útsendingu á Gufunni. Útskriftarverk hennar, sálfræðitryllirinn Strength Through Embarrassment, hefur verið sýnt á fjölmörgum dans- og leiklistarhátíðum í Evrópu í kjölfar þess að það var valið á Aerowaves í London árið 2008. Af samstarfsverkefnum má nefna sýninguna, two point five (2008) sem hún vann með Elínu Hansdóttur myndlistarmanni og sýnd var í PROGRAM - gallery í Berlín, Ókyrrð (2009) í samstarfi við Friðgeir Einarsson og Ragnar Í. Bragason, í leikstjórn Friðgeirs, auk sýningarinnar Húmanímal eftir sviðslistahópinn Ég og vinir mínir. Fyrir þá sýningu tók Margrét - ásamt Sögu Sigurðardóttur, við Grímuverðlaununum "Danshöfundur ársins 2009" auk þess að hljóta Grímu sem "Dansari ársins 2009".

Margrét og Saga stofnuðu kompaníið saga&magga árið 2006 og hafa unnið saman að ýmsum verkefnum síðan þá, m.a. stóðu þær að samsýningunni Víkingar og gyðingar í Hafnarfjarðarleikhúsinu (2007) í samstarfi við ísraelsku danslistamennina Anat Eisenberg og Noa Shadur, SGWÍMSLI (2007) og PRETTY BASSIC (2009) í samstarfi við tónlistarmanninn Úlf Hansson, svo fátt eitt sé nefnt.

Margrét hefur einnig samið dansa fyrir auglýsingar, þ.á.m. fyrir BYR - banka ("eniga meniga") og MERCEDES BENZ í Evrópu.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is