Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
- StaðaDansari, danshöfundur
- Sími+345 6937071
- Netfanglovisaosk@gmail.com
Ágrip
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir útskrifaðist frá sænsku ballettakademíunni í Stokkhólmi árið 2002. Síðan þá hefur hún unnið með Íslenska dansflokknum og einnig starfað sjálfstætt með hinum ýmsu listamönnum, nú síðast með Ernu Ómarsdóttir í verkinu “Teach us to outgrow our madness”. Árið 2005 stofnaði hún ásamt Höllu Ólafsdóttur Samsuðuna & Co. Verk Samsuðunnar „Kólnandi kaffi“ var tilnefnt til Grímunnar 2005 í flokki dansverðlauna og verkið „Hundaheppni“ var sýnt á Reykjavík Dance Festival 2007 og á Dublin Dance Festival 2008. Lovísa hefur einnig tekið þátt í nokkrum leikhúsuppfærslum þar sem hún hefur tekið að sér bæði leik- og danshlutverk, dansleikhússamkeppni Íd og LR og farið í fjölmörg sýningaferðalög m.a. til Japans með listahópnum Aurora Borealis. Lovísa hefur hlotið viðurkenningu frá Grímunni (Íslensku leiklistarverðlaunin) fyrir störf sín. Hún starfar um þessar mundir hjá Íslenska dansflokknum og með dansleikhúshópnum Samsuðunni og co.


