Lára Stefánsdóttir
- StaðaDansari, danshöfundur
- Sími+354 8994913
- Netfanglarastef@simnet.is
- Heimasíðahttp://www.larastef.is/
Ágrip
Lára Stefánsdóttir hefur verið atvinnudansari síðan 1980 og var fastráðinn dansari við Íslenska dansflokkinn frá 1982 til 2004. Hún dansaði mörg leiðandi hlutverk á þessum árum með flokknum. Lára hefur samið fjölda dansverka, m.a. fyrir Íslenska dansflokkinn, Listdansskóla Íslands, Pars Pro Toto dans-leikhús, og séð um dans/sviðshreyfingar í fjölmörgum uppsetningum við helstu leikhús landsins. Hún lauk mastersnámi í kóreógrafíu við Middlesex University, London vorið 2006. Dansverk Láru hafa verið sýnd víða erlendis, þ.e. Danmörku, Þýskalandi, Líbanon, Austurríki, Frakklandi, Englandi, S-Afríku, Eystrasaltslöndunum, Færeyjum, Japan, Búlgaríu og víðar. Lára er listrænn stjórnandi dans-leikhússins Pars Pro Toto (PPT).
Af dansverkum hennar má nefna Hræringar (1997), Langbrók (1999), Elsa (2000), Jói (2001) Da (2001) og Frosti (2003) samið í tilefni af 30 ára afmæli Íslenska dansflokksins. Síðustu verk Láru eru Lúna (2004), Von (2005), Áróra Borealis (2005) G.duo (2007), Svanurinn (2008). Lára hefur unnið til fleiri viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín. Árið 1998 fékk hún 1. verðlaun í Danshöfundasamkeppni Íd fyrir verkið Minha Maria Bonita, í júní 2001 hlaut verk hennar, Elsa, fyrstu verðlaun í alþjóðlegri danshöfundasamkeppni í Helsinki í Finnlandi. Í mars 2002 hlaut dansverkið Jói 1.verðlaun í sólódansleikhúskeppni í Stuttgart í Þýskalandi. Dansverkið Lúna, hlaut Grímuverðlaunin 2004. Fleiri verk Láru hafa fengið tilnefningar til Grímunnar, m.a. dansverkið Systur (2008) sem hún samdi ásamt Ástrós Gunnarsdóttur. Í framhaldi af vinsældum sýningarinnar Systur var PPT veittur styrkur frá Leiklistarráði Íslands, Menntamálaráðuneytinu, til að setja upp sviðsverkið Bræður, frumsýnt á Listahátíð Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu, maí 2010. PPT fékk þriggja ára samstarfssamning við Reykjavíkurborg 2007 -2009. Lára tók við stöðu skólastjóra Listdansskóla Íslands vorið 2009.