Katrín Ingvadóttir
- StaðaDansari, danshöfundur, listdanskennari
- Sími+354 6945544
- Netfangkataingva@gmail.com
- Heimasíðahttp://www.id.is/
Ágrip
Katrín Ingvadóttir hóf ballettnám hjá Sigríði Ármann, en stundaði nám við Listdansskóla Þjóðleikhússins og Jassballettskóla Báru á árunum 1982 –1991 og eftir það við Arts Educational School of London í tvö ár.
Katrín er fastráðin hjá Íslenska dansflokknum og hefur verið þar síðan 1993 og tekið þátt í flest öllum sýningum hans síðan.
Katrín hefur einnig tekið þátt í fjölda sýninga, m.a. hjá Íslensku óperunni, Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu, íslenska jassballettflokknum og fl.
Katrín kennir við Danslistarskóla JSB og hefur samið fjölda verka fyrir nemendur skólans.
Einnig hefur Katrín samið fjölda verka og sett upp margar sýningar, m.a. samdi hún þrjú verk fyrir dansleikhúsið, sá um hreyfingar í söngleiknum „Prinsessan“ sem var sett upp í samstarfi við hljómsveitina Sniglabandið,setti upp hársýningar fyrir Intercoiffure þar sem sýningarnar voru sýndar m.a í Tokyo og á Waldorf Astoria í New York , samdi dansa og hreyfingar fyrir verslunarskóla Íslands, séð um hreyfingar fyrir óperu, gert dans fyrir tónlistarmyndband og margt fleira.
Katrín hefur einnig aðstoðað danshöfundinn Jo Strömgren við uppsetningu á verkinu Kvart bæði í Svíþjóð og Danmörku.
Katrín var í stjórn fíld í fjögur ár
Katrín er einn af stofnendum „Follow the Fun“




