Katrín Ágústa Johnson
- StaðaDansari
- Netfangkataj8@gmail.com
Ágrip
Katrín Á. Johnson hóf nám við Ballettskóla Eddu Scheving á unga aldri og var síðar nemandi við Listdansskóla Íslands. Hún fór til Svíþjóðar í nám 16 ára gömul og útskrifaðist frá Svenska Ballettskolan í Stokkhólmi árið 1996. Þá hefur hún einnig numið í bæði Englandi og Danmörku og hlotið styrk fyrir unga listamenn frá Reykjavíkurborg. Hún hefur verið hjá Íslenska dansflokknum síðan 1996, með eins árs hléi árið 2005-2006 þegar hún vann við Stadt Theater Bern í Sviss. Katrín dansar annað tveggja hlutverka í dansmynd Katrínar Hall ,,Burst" sem hlaut verðlaun á danshátíð í Toronto, Kanada.