Karen María Jónsdóttir
- Staða danslistamaður, dramatúrg
- Netfangkarenmariajonsdottir@gmail.com
- CV Skoða íslenska útgáfu
Ágrip
Karen María Jónsdóttir útskrifaðist úr Listaháskólanum í Arnhem (ArtEZ) sem dansari árið 1998. Hún lauk námi í dramatúrgíu við Háskólann í Amsterdam þar sem hún útskrifaðist með doktroal gráðu árið 2004 ásamt meistaragráðu í þverfaglegri listkennslu frá saman háskóla. 2011 mun hún útskrifast frá Háskóla Íslands með M.ed. gráðu í stjórnun menntastofnana. Þennan tíma hefur Karen María starfað sem dansari, danshöfundur og dramatúrg.
Meðal listrænna verkefna hennar má nefna sýningar Dansleikhúss með ekka sem var brautriðjandi á Íslandi á sviði samtímadans á Íslandi og störf hennar sem dramatúrgs í verkefnum Ernu Ómarsdóttur. Í heildina hefur Karen starfað að hátt í þriðja tug sýninga, hérlendis og erlendis með ýmsum listamönnum.
Karen starfar sem fagstjóri dansbrautar Listaháskóla Íslands en hún hefur staðið fyrir uppbyggingu brautarinnar frá upphafi. Hún hefur einnig kennt ýmis námskeið við Listaháskóla á Norðurlöndunum og í Evrópu og stýrir Norræna tengslanetinu DAMA (Dance and Media Art). Karen skrifaði námsskrár í Listdansi fyrir menntamálaráðuneytið sem listdansskólakerifð á Íslandi byggir á í dag.
Karen María hefur leitt félagsstörf á Íslandi á síðastliðnum árum. Hún var formaður Félags Íslenskra listdansara á árunum 2006-2011 þar sem hún m.a. stóð fyrir stofnun launasjóðs sviðslistamanna. Hún leiddi skrif á fyrstu Dansstefnu 10/20 sem er stefnumótun og framtíðarsýn listgreinarinnar. Síðast en ekki síst hefur hún unnið mikilvægt baráttustarf fyrir stofnun Danshúss á Íslandi en liður í því var opnun Dansverkstæðisins í Reykjavík árið 2010.