Ingibjörg Björnsdóttir

  • StaðaFrv. skólastjóri, listdanskennari 
  • Netfangarnivil@itn.is

Ágrip

Ingibjörg Björnsdóttir var nemandi í Listdansskóla Þjóðleikhússins frá 1953-1960 og dansaði í fjölmörgum sýningum á vegum leikhússins á þessum árum. Við nám í Schottish Ballet School í Edinborg 1960 – 1963 og lauk Advanced prófi frá Royal Academy of Dancing (Nú Royal Academy of Dance), prófi í nútímalistdansi frá Imperial Society of Teachers of Dancing, auk þjálfunar í listdanskennslu nemenda frá þriggja ára aldri. Kennari við Listdansskóla Þjóðleikhússins og dansari í sýningum leikhússins frá 1964. Skólastjóri sama skóla frá 1977 til ársins 1990 þegar skólinn varð að sjálfstæðri stofnun. Skólastjóri Listdansskóla Íslands frá 1990 – 1997. Danshöfundur í mörgum sýningum Þjóðleikhússins á starfsárunum þar og samdi nokkur verk fyrir Íslenska dansflokkinn. Ingibjörg hefur auk þess samið dansa fyrir ýmsa leikhúshópa, tónlistarhópa (endurreinsnar- og barokkdansa) og fyrir sjónvarp. Setið í íslenskum og norrænum nefndum og stjórnum tengdum leiklist og dansi. BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2002 og MA í sagnfræði frá sama skóla árið 2007. Vinnur nú að ritun á sögu sviðlistardans á Íslandi auk þess að kenna listdans.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is