Hrafnhildur Einarsdóttir
- StaðaDansari, danshöfundur
- Sími+354 8617236
- Netfangraven@raven.is
- Heimasíðahttp://www.raven.is/
- CV Skoða íslenska útgáfu
Ágrip
Hrafnhildur Einarsdóttir er sjálfstætt starfandi danslistamaður og danshöfundur. Hún hóf dansnám sitt í Klassíska Listdansskólanum. Útskrifaðist með BA gráðu í dance theatre úr Laban í London, vorið 2009. Síðustu ár hefur Hrafnhildur unnið jafnt sem dansari og sviðslistamaður í verkum eftir aðra höfunda en einnig samið og sett á svið eigin verk, þar sem hún hefur nýlega byrjað að fara ólíkar leiðir í að semja með því að blanda dansvinnu sinni saman við videovinnu og eigin hljóðskor. Sumarið 2009 hlaut Hrafnhildur styrk til að taka þátt í DanceWEB scholarship program á ImpulsTanz danshátíðinni í Vínarborg, Austuríki, sama ár fékk hún verðlaun sem framúrskarandi listnemi í Kópavogi. Haustið 2009 samdi Hrafnhildur og sýndi í samvinnuverkefni með Danskonstkollektivet Sch!! Í Stokkhólmi, Svíþjóð og Stavanger, Noregi. Hún vinnur nú í London með lista hópnum Owenarts að dans og tónlistar rannsóknar verkefni sem hefur verið sýnt í Utrecht, Hollandi, en verið er að þróa verkefnið frekar og verður það sýnt í London, sumar 2010. Hrafnhildur er einnig partur af alþjóðlegu sviðslista samtökunum Meetoo Moving Arts Network.
Raven- er sjálfstætt starfandi dansleikhús undir stjórn dansara/danshöfundar Hrafnhildar Einarsdóttur. Vinnur við ólík verk innan sviðslistarinnar. Markmið er að vinna í samvinnu við aðra listamenn jafnt sem skapa eigin verk, og tengja saman ólík listform. Vinnur nú að nýrri dans stuttmynd, og á þróun verksins Hulda (2009) í samvinnu við dansara og tónlistarmenn. Hefur einnig verið boðið á Abundance dans hátíð í Svíðþjóð í Júní, og til Mexico í lok árs 2010 með sólóinn Hrefna sem var upphaflega sýndur í Bonnie Bird theatre í London 2009.




