Helena Jónsdóttir
- StaðaDanshöfundur
- Sími+354 8226100
- Netfangmediadans@this.is
- Heimasíðahttp://www.this.is/helena
- CV View English version
Ágrip
Veltir þú því ekki stundum fyrir þér hvaðan hugmyndir þínar, venjur, hegðunarmunstur eða hreyfingar eru ættaðar? Hvað er sjálfsprottið og hvað lært? Hvað er að verða til á þessu augnabliki og hvað er aldagamall endurómur?
Það má lýsa sem vangaveltum um hinar óendanlegu skapandi uppsprettur í lífi okkar allra, þar sem sameiginlegur gagnabanki stendur okkur til boða hvar sem litið er. Það er um öll þessi smáu og stóru augnablik og áhrifavalda í fortíð og nútíð sem við nýtum meðvitað og ómeðvitað í okkar daglega máli “bodylanguage” eða líkamsmáli. Og í þeim samskiptum og er vert að skoða hvað mótar okkur og nærir . Hvernig skilum við þeim hugmyndum og viðhorfum sem við tileinkum okkur til annarra? 67 % bodylanguage- 14 % the voice -7 % words. Ég var búin að vinna lengi með danssporin í þeirri hefðbundu mynd sem skólinn kenndi mér.
Í byrjun þegar ég nefndi dans tók aumingjahrollur landfestu í líkama leikarans. Og oft var svarað “ég kann ekki að dansa” og ég spyr hvar misstum við leyfið? Eftir því sem á leið og ég tók mér það frelsi í mínum eigin verkum og vinna meira og meira með leikurum og svokölluðum “ non dancers ” skapaði ég sterkari orðaforða. Setti fagsporin aðeins til hliðar og hannaði “choreography” úr svokölluðum “eðlilegum“ hreyfingum án þess að missa út þá heildarmynd sem mín reynsla og fagurfræði í dansinum gaf mér. Heillandi var að vinna með leikurum, “non dancers”, dönsurum og eru þeir viljugir að prufa eitthvað nýtt. Með því einfaldlega að leggja áherslu á líkamsmálið eða “bodylanguage”, meðvitað. Til dæmis að endurtaka ákv.setustöðu eða krossleggja fætur aftur og aftur varð til skemmtilegur dans sem allir fundu sig í. Eins og kannanir hafa sýnt (sjá tölur hér að ofan) þá notum við líkamsmálið í ansi háu hlutfalli, sérstaklega í okkar fyrstu kynnum. Þegar við förum á stefnumót, atvinnuviðtal og svo frh. Og er það ekki það sem áhorfandinn upplifir, “fyrstu kynni”.