Halla Ólafsdóttir

  • StaðaDansari, danshöfundur 
  • Sími+354 8947688 / +46 737773630
  • Netfanghalla.olafsdottir@gmail.com

Ágrip

Halla Ólafsdóttir, dansari og danshöfundur, útskrifaðist frá sænsku ballettakademíunni í Stokkhólmi árið 2004. Hún stundar nú mastersnám í kóreógrafíu við University College of Dance í Stokkhólmi þar sem hún hefur unnið með m.a. listamönnunum Xavier le Roy, Alice Chauchat, Krõõt Juurak, Christine De Smedt og Jan Ritsema. Hún hefur samið, dansað og sýnt verk með mychoreography.org meðal annars í Kaaitheater í Brussel, Centre Chorégraphique National de Montpellier, Hau Theatre í Berlín og Atelante Teater í Gautaborg. Hún hefur unnið sem dansari m.a. í verkum eftir Palle Granhöj, Claire Parsons og dansflokkinn SNAPS. Halla tók þátt í Dansleikhússamkeppni Íd og LR árið 2005, þar sem verk hennar og Evu Rúnar Þorgeirsdóttur Beðið eftir hverju ? bar sigur úr býtum. Árið 2005 stofnaði hún ásamt Lovísu Ósk Gunnarsdóttur Samsuðuna & Co. Verk Samsuðunnar „Kólnandi kaffi“ var tilnefnt til Grímunnar 2005 í flokki dansverðlauna og verkið „Hundaheppni“ sýnt á Reykjavík Dance Festival 2007 og Dublin Dance Festival 2008. Hún hefur komið að ýmsum dans- og leikhúsuppfærslum sem danshöfundur m.a. í Danshöfundasmiðju Íslenska dansflokksins, DANSleikhúsinu, söngleiknum Hér og nú í Borgarleikhúsinu og Mindcamp í Hafnarfjarðaleikhúsinu.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is