Guðrún Óskarsdóttir

  • StaðaDansari, danshöfundur 
  • Sími+354 8666860 / +31 644329984
  • Netfanggudrunoskars@hotmail.com

Ágrip

Guðrún Óskarsdóttir lauk námi við Listdansskóla Íslands vorið 2003 og diplóma frá Kungliga Svenska Balettskolan í Stokkhólmi vorið 2004, auk stúdentsprófs frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún var í starfsþjálfun hjá Íslenska dansflokknum veturinn 2004-2005 og dansaði með Id til ársloka 2006. Þar vann hún meðal annars með danshöfundunum Rami Be’er, Didy Veldman, Stephen Shropshire, Jóhanni Frey Björgvinssyni og Helenu Jónsdóttur. Samhliða því tók hún þátt í verkefnum hjá DANSleikhúsinu, Reykjavík Dance Festival og himherandit.productions. Á vorönn 2007 var hún í starfsþjálfun hjá Dansk dansetheater í Kaupmannahöfn. Á árunum 2008 -2009 vann Guðrún m.a. með Peter Anderson, Auði Bjarnadóttur og Guðmundi Helgsyni í danshöfundasmiðju Id, auk þess að starfa sjálfsætt.

Sumarið 2007 stóð Guðrún fyrir sýningum með danshópnum Samyrkjum í samstarfi við Hitt húsið. Haustið 2007 stofnaði hún ásamt tveimur öðrum atvinnudönsurum dansflokkinn Darí Darí Dance Company. Dansflokkurinn hefur frumsýnt þrjú verk, ,,Hoppala”, ,,Gibbla Yggdrasils” og ,,Marbara”. Síðastnefnda verkið var sýnt á Reykjavík Dance Festival haustið 2009. Darí Darí Dance Company hlaut styrk frá Stjórn listamannalauna og mun frumsýna sitt fjórða dansverk 31. mars 2011 í Tjarnarbíói.

Guðrún flutti til Amsterdam haustið 2009. Þar tók hún þátt í tímum, námskeiðum og 5 mánaða „research“ verkefni með danshöfundinum Amy Raymond. Árið 2010 dansaði hún með dansflokknum de Kiss Moves og tók þátt í þremur uppfærslum, “Just Shut Up and Dance“, “Vivaldi Rock“ og “It will be“. Auk þess vann hún með danshöfundinum Miikka Ryytty og ljósmyndaranum Samuel Hense að þriðja og um leið lokahlekk dansmyndarinnar „The Memory of Skin“ sem verður frumsýnd vorið/sumarið 2011.

Guðrún hefur kennt klassískan ballett við Ballettskóla Guðbjargar Björgvins, Danslistarskóla JSB og Listdansskóla Íslands.

Guðrún var gjaldkeri Félags íslenskra listdansara veturinn 2008-2009 og er nú vefstjóri heimasíðu félagsins, dance.is.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is