Guðmundur Helgason
- StaðaDansari, danshöfundur, listdanskennari
- Sími+345 6954271
- Netfangmumminn@simnet.is
- Heimasíðahttp://mummionline.com/
- CV View English version
Ágrip
Guðmundur hóf nám við Listdansskóla Þjóðleikhússins árið 1987 og var þar fram til 1991 þegar hann hélt utan til náms við Konunglega Sænska Ballettskólann í Stokkhólmi. Hann starfaði með Íslenska dansflokknum frá 1993 - 2004 og tók þátt í öllum uppfærslum hans auk þess að taka þátt í West Side Story í Þjóðleikhúsinu, Kysstu mig Kata, Sól og Máni og Chicago í Borgarleikhúsinu auk ýmissa annarra sýninga. Hann sá um dansa í Móglí sem Leikfélag Reykjavíkur setti á svið og sviðshreyfingar/dans í Spítalaskipinu í uppfærslu Nemendaleikhúss LHÍ 2005. Guðmundur hlaut önnur verðlaun í Danshöfundasamkeppni Íslenska dansflokksins haustið 1998 fyrir verkið Le Devine og verkið Partý sem samið var fyrir Dansleikhússamkeppni Íd og LR árið 2003 vann til áhorfendaverðlauna. Það verk var síðan unnið frekar og sýnt í október 2003. Verkið Tímarúm samdi Guðmundur svo núna vorið 2008 fyrir Danshöfundasmiðju Íslenska Dansflokksins og var það sýnt bæði í yfirgefnu verslunarhúsnæði og í Bláa Lóninu.
Árið 2004 sagði Guðmundur skilið við Íslenska dansflokkinn og hélt til New York í Mastersnám við New York University - Tisch School of the Arts, þaðan sem hann útskrifaðist vorið 2006 með MFA gráðu í dansi. Hann bjó svo í New York í eitt ár eftir nám og vann meðal annars sem einkaþjálfari við Equinox líkamsræktarstöðina í Greenwich Village. Guðmundur hefur kennt við Listdansskóla Íslands á árunum 1993-2000 og svo aftur núna frá 2007 eftir heimflutning frá New York. Auk þess kennir hann við Ballettskóla Guðbjargar Björgvins og var hjá Danslistarskóla JSB 2007-8.
Auk aðalstarfsins, kennslunnar hefur Guðmundur starfað sem verkefnisstjóri "Strákar dansa" hjá Íslenska dansflokknum og vinnur að ýmsum stuttmyndum í alltof fáum frístundum.






