Gianluca Vincentini
- StaðaDansari, danshöfundur
- Sími+354 6987782
- Netfangg_vincentini@yahoo.it
Ágrip
Gianluca Vincentini útskrifaðist frá The National Ballet Academy á Ítalíu árið 2002 en þá gekk hann til liðs við Transitions Dance Company at LABAN. Hann hefur mikla reynslu af því að starfa með flokkum á borð við Henri Oguike’s H2O, IJAD Dance Company, himherandit.productions, Efrosini Protopapa’s Lapsus Corpi og Íslenska dansflokkinn. Auk þess hefur Gianluca starfað sem danskennari og haldið fjölbreytt dansnámskeið víðs vegar um Evrópu, í Asíu og Bretlandi frá árinu 2003. Hann kenndi við LABAN 2004-2005 og starfaði sem fastráðinn kennari og sem námsbrautastjóri hjá Klassíska Listdansskólanum, en þar kenndi hann Limon tækni á öllum námstigum. Hann kennir dans við Listaháskóla Íslands.
Gianluca er núverandi æfinga- og verkefnastjóri Íslenska dansflokksins og listrænn stjórnandi Spiral dansflokksins. Þar hefur hann m.a. unnið við að aðstoða ólíka danshöfunda, s.s. Katrínu Hall, Láru Stefánsdóttur, Helenu Jónsdóttur, Alexander Ekman, Jo Stromgren, André Gingras og marga fleiri.
Gianluca hefur samið dansverk fyrir Devon Youth Dance Company, Nookta Associtation og frá 2003 var hann danshöfundur fyrir himherandit.productions, ásamt Andreas Constantinou. Þeir gerðu nýlega saman verkið " The Opening " sem Spiral dansflokkurinn sýndi í Sundhöll Reykjavíkur í mars 2009. Haustið 2009 sömdu Gianluca og Pauline Huguet verkið „Hjá Fröken Carmen“ fyrir Spiral dansflokkinn.





