Erna Ómarsdóttir
- StaðaDansari, danshöfundur
- Netfangerna.shalala@gmail.com
Ágrip
Erna fæddist með dansbakteríuna og byrjaði að læra dans á unglingsárunum hjá Dagný Björk í félagsmiðstöðinni Agnarögn í Kópavogi.
Hún útskrifaðist úr MR í Reykjavík og seinna frá PARTS (Performing arts research and training studios) í Brussel árið 1998 undir stjórn Önnu Teresu De Keersemaeker. Síðan þá hefur hún unnið með nokkrum helstu dans og leikstjórum Evrópu og flakkað með verkin út um allan heim. Með Jan Fabre og Troubleyn tók hún þátt í sköpun og sýningu á nokkrum verkum þar á meðal sólóverkinu My movements are alone like streetdogs. Með Ballet c de la B, og Sidi Larbi Cherkaoui, tók hún þátt í sköpun og sýningum á FOI. Hún tók einnig þátt í spunaseríunni Auf der tisch með undir handleiðslu Meg Stuart. Hún stofnandi ásamt fleirum Poni collective í Brussel og einnig Ekka í Reykjavík og vann með þeim nokkur verkefni. Síðustu árin hefur hefur hún einbeitt sér að eigin verkum sem hafa flest verið sýnd víða um Evrópu. IBM 1401 (a users manual) og Mysteries of love eru verk sem hún gerði í samvinnu við Jóhann Jóhannsson tónskáld, Ófaett og Transaquania (fyrir Íslenska Dansflokkinn) samdi hún í samvinnu við Damien Jalet og Gabríelu Friðriskdóttur myndlistakonu. Black Marrow er nýasta afkvæmið sem var frumsýnt nýverið á Melbourne international Arts festival. Það var einnig samið í samvinnu við Damien fyrir einn helsta danshóp Melbourne í Ástralíu, Chunky Move. Önnur verk eru We are all Marlene dietrich For sem Erna samdi í samvinnu við Emil Hrvatin fyrir Íslenska Dansflokkinn. The Talking Tree sem ferðast um með frumsamdri tónlist Lieven Dousselaere og Digging in the sand er með lifandi tónlist Valdimars Jóhannssonar. Teach us to outgrouw our madness er verk fyrir 5 dásamlegar konur frá Norðurlöndum og var einnig nýlega frumsýnt í Frakklandi.
Ernu finnst rosa gaman að syngja og öskra þannig að hún er í hljómsveitinni Poni og nýstofnadum dúet með Valda sem heitir Lacyblood. Hún hefur unnið með fleiri frábærum listamönnum eins og Gabríelu Friðriksdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Ben Frost, Margréti Söru Guðjónsdóttur og spriklað í einu Placibo tónlistarmyndbandi á móti Harry Dean Stanton. Hún hefur dansað og leikið í nokkrum dans eða listrænum myndum eftir Pierre Coulibeuf, Pál Steingrímssson, Masbedo,Tierry De Mey og sig sjálfa.
Hún hefur hlotið nokkra viðurkenningar, þar á meðal 5 grímur og nokkru sinnum verið tilnefnd í Ballet Tanz fyrir bestan dans eða dansverk.








