Elva Rut Guðlaugsdóttir

  • StaðaDansari, danshöfundur, listdanskennari 
  • Netfangelvagudlaugs@gmail.com

Ágrip

Elva Rut hóf dansnám sitt hjá Balletskóla Sigríðar Ármann 1988 þá fimm ára gömul.

Hún hóf kennaranám árið 2000 hjá Ástu Björnsdóttur skólastjóra Balletskóla Sigríðar Ármann.
Árið 2002 tók hún Associate/Intermediate í klassískum ballet og kennsluréttindum frá National Association of Teachers of Dancing og í kjölfar þess tók hún yfir kennslu skólans í Kópavogi. Árið 2004 tók hún svo Licentiate/Advanced 1 í klassískum ballet og kennsluréttindum einnig frá National Association of Teachers of Dancing.

Árið 2005 fluttist Elva til London til að hefja nám í Bird College og útskrifaðist þaðan árið 2008 með BA(Hons) í Dance and Theatre performance og NatDip(He) í Professional Musical Theatre. Hún hefur sótt fjölda námskeiða í London, Budapest og Yorkshire í Englandi.

Elva starfar nú sem yfirkennari Balletskóla Sigríðar Ármann fyrir nemendur á öllum aldri. Þar kennir hún klassískan ballet auk þess að stýra nútíma- og jazzkennslu skólans. Hún hefur samið fjölda dansa fyrir nemendasýningar skólans.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is