Berglind Pétursdóttir

  • StaðaDansari, danshöfundur 
  • Sími+354 8237345
  • Netfangberglindp@gmail.com

Ágrip

Berglind Pétursdóttir hóf nám hjá Balletskóla Sigríðar Ármann árið 1994 og lá leiðin þaðan í Jazzballettskóla Báru. Hún útskrifaðist af nútímabraut Listdansskólans vorið 2007 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanun v/Hamrahlíð sama ár. Berglind stundar nú nám á samtímadansbraut Listaháskóla Íslands.

Hún er einn stofnanda og meðlima í danshópnum Hnoð. Aðrir meðlimir eru Ásrún Magnúsdóttir, Rósa Ómarsdóttir og Védís Kjartansdóttir. Hópurinn hóf störf sem Skapandi sumarhópur hjá Hinu Húsinu, sigraði heiminn og setti síðast upp sýninguna Snoð á ArtFart.

Berglind hefur starfað sem kennari hjá Danslistarskóla JSB og Balletskóla Sigríðar Ármann síðan í janúar 2008.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is