Auður Ragnarsdóttir

  • StaðaDansari, danshöfundur 
  • Netfangaudur.ragnars@hotmail.com

Ágrip

Auður Ragnarsdóttir hóf dansnám sitt við Madison School of Ballet í Wisconsin í Bandaríkjunum árið 1992 og stundaði seinna nám við Ballet Divertimento í Montréal, Kanada. Hún var í fyrsta útskriftarárgangi af nútímabraut Klassíska Listdansskólans 2009. Þaðan hélt hún til Kanada og stundar þar nám í nútímadansi og danssmíðum við Concordia University í Montréal. Hún lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut M.H. 2006.

Hún var í Spíral Dansflokknum árið 2008-2009 og dansaði þar í ýmsum verkum, þ.á. m. site-specific verkinu “The Opening” í Sundhöll Reykjavíkur.

2009 tók hún tók þátt í 60 x 60 Dance, árlegu farandverkefni þar sem 60 tónsmiðir og 60 danshöfundar koma saman til að gera klukkutíma langa sýningu. Hver danshöfundur túlkar einnar mínútu electro-acoustic verk.

Auður leiddi Danshópinn Uppsteyt sumarið 2010 og hlaut til þess styrk frá Evrópu Unga Fólksins. Hópurinn var einn af Listhópum Hins Hússins sumarið 2010. Hann sýndi víða um Reykjavík. Meðal sýninga var stór innsettning á ArtFart.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is