Auður Bjarnadóttir

Ágrip

Menntun: Landspróf frá Hagaskóla 1975. Listdansnám hjá Royal Ballet í London 1976 og þrjú dansnámskeið í Kaupmannahöfn. Kennaranámskeið við Konunglega ballettinn í Kaupmannahöfn 1990. Nám í leikstjórn við Welsh College of Music and Drama 1995-1996.

Starfsferill: Listdansari hjá Íslenska dansflokknum við Þjóðleikhúsið 1973-1978 og 1983-1985. Sólódansari hjá Bayerische Staatsoper í München 1978-1982, Basler Ballett í Basel 1982-1983 og Konunglegu sænsku óperunni í Stokkhólmi 1985-1987. Kennari, danshöfundur og dansari hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslenska dansflokknum o.fl. 1987-1989. Listdansstjóri hjá Íslenska dansflokknum 1989-1990. Stofnaði Svöluleikhúsið 1992, dansleikhús.

Dansverk: Ýmis dansverk í félagi við aðra, s.s. Hversdagsleikur, skólasýningar og Skapanornirnar, dansverk samið fyrir opnun Kvennaráðstefnunnar í Ósló 1988. Frumsamin sýning á Listahátíð 1992: Ertu svona kona og Andinn í rólunni, fyrir einn dansara og leikkonu. Mánans ar, 1994, Jörfagleði, 1995 (Borgarleikhúsið) og Fyrir lífið, 1997. Sólódans í Seattle: How do you like Iceland, 1999 og What the night is long í Salnum 2001. Sálmar um lífið, dansverk á Kristnihátíð í júlí 2000. Ballettinn Salka Valka, við tónlist Úlfars Inga Haraldssonar, frumfluttur á Listahátíð 2002. Leikstýrði Ástarsögu 3 eftir Kristínu Ómarsdóttur í Borgarleikhúsinu, 1997, Söngvaseið hjá Leikfélagi Akureyrar, 1998 og Maður lifandi, kammeróperu eftir Karólínu Eiríksdóttur og Árna Ibsen í Borgarleikhúsinu 1999. Hefur auk þess samið dansa og hreyfingar við leiksýningar hjá Þjóðleikhúsi og Borgarleikhúsi.

Viðurkenningar: Heiðurslaun Þjóðleikhússins 1977. Hlaut fyrstu verðlaun í norrænni danskeppni í Kuopio í Finnlandi 1979. Starfslaun listamanna 1990.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is