Ásta Bærings Bjarnadóttir
- StaðaDanshöfundur, listdanskennari
- Sími+354 7737973
- Netfangdanskompani@danskompani.is
- Heimasíðahttp://www.danskompani.is/
Ágrip
Ásta lagði stund á dansnám hjá Danslistarskóla JSB frá barnsaldri og lauk þar dansaradiplóma vorið 2000. Á þessum tíma tók hún þátt í ótalmörgum danssýningum og verkefnum á vegum skólans sem og í samstarfi við aðra aðila.
Ásta hefur dansað í fjölmörgum söngleikjum frá unga aldri, má þar nefna Galdrakarlinn í Oz '97, Grease '98, Fame '04, Footloose '06, Hafið '07, Grease '09 auk þess að hafa dansað í danssýningum Verzlunarskóla Íslands '98-'01 og ótal öðrum verkefnum á leiksviði sem og á filmu. Að ógleymdu tók hún virkan þátt í uppsetningum Dansleikhússins í nokkur ár sem dansari. Ásta hefur tekið að sér dansstjórn í nokkrum framhaldsskólasöngleikjum, danssýningum og við ýmis verkefni. Hún hefur starfað sem danskennari frá 1999 hjá Danslistarskóla JSB sem og fleiri aðilum.
Í dag starfrækir Ásta dansskólann DansKompaní í Reykjanesbæ þar sem fjöldi nemenda leggur stund á jazztækni og dansstíla á borð við, jazzdans, contemporary, hip-hop og breakdans.





