Ásgerður Guðrún Gunnarsdóttir
- StaðaDansari, leiklistarkona
- Sími+ 354 6933385
- Netfangasgud83@gmail.com
Ágrip
Ásgerður útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2009 af Fræði og framkvæmd, verklegri og fræðilegri leiklistarbraut og stundaði skiptinám við School of New Dance Development haustið 2008. Hún lauk diplómanámi í samtímadansi frá sama skóla árið 2006. Hún útskrifaðist árið 2005 með diplóma í nútímadansi frá Listdansskóla Íslands.
Hún hefur starfað með Íslensku hreyfiþróunarsamsteypunni síðan árið 2005 og unnið að fjórum verkum innan hennar. Hún hlaut styrk ásamt Vigdísi Evu Guðmundsdóttur árið 2007 til þess að rannsaka stöðu danslistarinnar á Íslandi.
Ásgerður er einnig einn af stofnaðilum sviðslistahátíðarinnar artFart og hefur unnið við hátíðina frá upphafi hennar.



