Katrín Hall
- StatusChoreographer, artistic director
- Phone+354 664 0400
- Emailkatrin.hall@id.is
Description
An English description has not yet been submitted.
Katrín Hall byrjaði ung sinn feril sem dansari hjá Íslenska dansflokknum. Hún tók þátt í langflestum uppfærslum flokksins frá 1981-1988. Á þeim tíma dansaði Katrín mörg burðarhlutverk og vann með fjölmörgum danshöfundum erlendum sem innlendum. Hún tók einnig þátt í söngleikjum, óperu og leiksýningum. Árið 1986 stofnaði Katrín danshópinn Pars pro toto ásamt Láru Stefánsdóttur dansara og danshöfundi. Sama ár setti Pars pro toto upp sitt fyrsta dansverk En andinn er veikur sem sýnt var í Hlaðvarpanum og unnið í samvinnu við Láru og Guðjón Pedersen leikstjóra.
Frá 1988-1996 starfaði Katrín í Þýskalandi. Hún var sólódansari við Tanzforum, dansflokk óperuhússins í Köln, undir listrænni stjórn Jochen Ulrich. Jochen samdi fjölda dansverka þar sem Katrín var gjarnan í burðarhlutverkum. Hún dansaði aðalhlutverk í Hnotubrjótnum, Pétri Gaut, Yermu, Schritt fur Schritt, Verlobung in St. Domingo og Get up early svo fáein séu nefnd. Auk þess vann Katrín með fjölda annarra danshöfunda eins og Louis Falco, Jennifer Mueller og Richard Wherlock. Katrín ferðaðist og sýndi víða um heim með Tanzforum.
Árið 1996 tók Katrín við listrænni stjórn Íslenska dansflokksins. Á þeim tíma hefur flokkurinn sýnt verk eftir marga af þekktustu danshöfundum Evrópu. Hún hefur auk þess beitt sér fyrir því að koma íslenskum danshöfundum á framfæri. Katrín hefur skapað flokknum sérstöðu og sterkan prófíl sem nútímadansflokkur í háum gæðaflokki. Undir hennar stjórn hefur Íslenski dansflokkurinn ferðast víða og sýnt í borgum eins og Avignon, Prague, Bologna, Vilnius, Bergen, Berlín, Helsinki, Ottowa, Toronto, New York, Shanghæ, Peking, Kaupmannahöfn, Den Haag, Linz, Salisbury, Leverkusen, Ludwigshafen svo fáeinar séu nefndar.
Katrín hefur samið dansverkin NPK, Milli heima, Stingray og Velkomin heim fyrir Íslenska dansflokkinn. Dansverkið Brunnar samdi hún árið 2000 að beiðni Orkuveitu Ríkisins og árið 2004 samdi hún verk fyrir opnunarhátíð Listahátíðar í Reykjavík. Katrín hefur verið tilnefnd til menningarverðlauna DV og Grímunnar fyrir verk sín.
Katrín hefur einnig gert dansmyndina Burst með Reyni Lyngdal sem var hluti af Moving North, samnorræns verkefnis. Stuttmyndin hefur verið sýnd um allan heim og verkefnið hlotið verðlaun.
Katrín hefur einnig verið fengin til að semja dansverk fyrir erlenda dansflokka. Árið 2003 setti Katrín upp nýja og endurbætta útgáfu af verki sínu Stingray í Innsbruck í Austurríki og vorið 2006 samdi hún verkið Instant smile fyrir dansflokk Óperhússins í Darmstadt í Þýskalandi. Vorið 2009 samdi Katrín nýtt verk Orka fyrir dansflokk óperhússins í Graz.
Þessi verk eiga það sameignlegt að hafa öll fengið mjög jákvæð viðbrögð áhorfenda jafnt sem gagnrýnenda.
Katrín hefur einnig unnið við fjölda leikhúsuppfærslna í gegnum árin, og samið dansatriði við ýmis tækifæri svo sem eins og ráðstefnur, jafnt innlendar sem erlendar og aðrar stórar uppákomur og listviðburði.
Katrín samdi nýverið dans við tónlistarmyndband poppstjörnunnar Shakiru “Did it again” sem hefur vakið gríðarlega athygli víða um heim.
Katrín var sæmd fálkaorðunni árið 2000 fyrir störf sín í þágu danslistar á Íslandi.









