Irma Mjöll Gunnarsdóttir
- StatusChoreographer, dance teacher
- Phone+ 354 6617494
- Emailirma@internet.is
- CV View English version
Description
An English description has not yet been submitted.
Irma Gunnarsdóttir starfar sem listdanskennari og danshöfundur. Hún er einnig deildarstjóri við Danslistarskóla JSB og hefur sinnt ýmsum stjórnunar- og félagsstörfum tengdum dansi á undanförnum árum.
Irma lauk meistaranámi í listkennslu frá Listaháskóla Íslands í janúar 2012. Hún lauk danskennaraprófi frá DÍ árið 1990 og var við nám hjá Jazzballettskóla Báru á árunum 1980 – 1990. Irma er stúdent af náttúrufræðibraut frá Menntaskólanum í Reykjavík.
Á yfir 25 ára starfsferli sem danslistamaður hefur Irma starfað sjálfstætt sem dansari. Hún hefur samið fjölmörg dansverk og sett upp ótal nemendasýningar. Hún er einn af stofnendum DANSleikhússins og starfaði við það sem danshöfundur og framkvæmdastjóri á árunum 2002 – 2009. Árið 2011 setti Irma upp verkið AMPERE í Rafstöðinni við Elliðaárdal. Verkið var samið í tengslum við meistaraverkefni höfundar í listkennslu.









