Hjördís Lilja Örnólfsdóttir
- StatusDancer
- Emailhjordislilja@hotmail.com
Description
An English description has not yet been submitted.
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir hóf dansnám sitt við Ballettskóla Eddu Scheving árið 1991. Hún stundaði síðan nám við Listdansskóla Íslands frá 1993 til 2003, en þá útskrifaðist hún af klassískri braut. Sama ár útskrifaðist hún sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Árið 2003-2004 var Hjördís í starfsnámi hjá Íslenska dansflokknum og tók hún þátt í uppfærslu flokksins á verkinu Lúnu, eftir Láru Stefánsdóttur, ásamt því að vinna önnur verkefni með Íd. Hjördís hefur verið fastráðin við dansflokkinn frá því haustið 2004 og hefur unnið þar með fjölda danshöfunda, bæði íslenskra og erlendra.
Hjördís tók þátt í Listahátíð í Þjóðleikhúsinu árið 2002 og tók þátt í Reykjavík Dance Festival 2002 og 2004. Hjördís hefur einnig tekið þátt í nokkrum leikritum, bæði í gegnum Íd og sjálfstætt. Þau eru: Bugsy Malone (1997), Lína Langsokkur (2003), Chicago (2004), Carmen (2006) og Grease (2009).




