Hildur Elin Ólafsdóttir
- StatusDancer
- Emailhildur_elin@hotmail.com
Description
An English description has not yet been submitted.
Hildur Elín hóf dansnám hjá Guðbjörgu Björgvinsdóttur og síðan hjá Listdansskóla Íslands. Hún sótti sumarnámskeið m.a. í Englandi og fékk styrk til að fara á sex vikna námskeið hjá School of American Ballet, New York þegar hún var 16 ára. Sama ár hóf hún nám við Konunglega listahákólann í Haag og lauk þaðan námi með BA. gráðu í dansi .
Á þeim árum sem Hildur Elín lærði í Hollandi tók hún þátt í sýningum á Cadans festival í Haag og með dansflokkunum Het Nationale ballet á Þyrnirósu í Amsterdam og fór í sýningarferðalag með Nederlands dans theater til Vínar á danshátíð ImPulsTanz og sýndi Arcimboldo eftir Jiri Kylian.
Að námi loknu var henni boðinn samingur við Rínaróperuna (Deutsche Oper am Rhein) í Düsseldorf þar sem hún starfaði í sex ár. Þar var árlegur sýningafjöldi um 90 sýningar og á þeim tíma tók hún þátt í sýningum á borð við Svanavatnið, Þyrnirós, Hnotubrjótinn auk fjölda nútímaverka. Ferðaðist til dæmis með flokknum um Þýskaland, Portugal og Kína.
Eftir það var henni boðið að koma og starfa hjá Theater Basel í Sviss undir stjórn Richard Wherlock. Þaðan lá leiðin til Hannover og starfar nú hjá Staatsoper Hannover undir stjórn Jörg Mannes. Á þessum árum hefur hún dansað í verkum eftir ýmsa danshöfunda eins og Jiri kylian, Nacho Duato, John Neumaier, Uwe Scholz, Youri Vamos, Richard Weherlock, Mauro Bigonzetti, Jochen Ulrich, Jörg Mannes og Hans van Manen auk annarra danshöfunda. Einnig hefur Hildur unnið með og dansað í vekum eftir sambýlismann sinn Pantelis Zikas. Verk eftir hann hafa verið sýnd í Þýskalandi, Danmörku, Grikklandi og Sviss.







