Guðbjörg Arnardóttir
- StatusDance teacher
- Phone+ 354 8940577
- Emaillistdansskoli@simnet.is
Description
An English description has not yet been submitted.
Guðbjörg nam ballett við Listdansskóla Þjóðleikshússins. Hún lærði ballet í sex mánuði við Pacific Northwest Ballet School í Seattle og fjóra mánuði við Joffrey Ballet School í New York. Guðbjörg hefur dansað í stórum og smáum dansverkum hér á landi sem og erlendis. Hún lauk þriggja ára danskennaranámi frá Danshögskolan í Stokkhólmi og sérhæfði sig í barnadönsum, klassískum ballett og nútímadansi. Hún hefur kennt við ýmsar dansstofnanir í Svíþjóð og á Íslandi. Guðbjörg lauk grunnskólakennaramenntun við Kennaraháskóla Íslands vorið 2001 og haustið 2003 lauk hún prófi frá sama skóla í menntun tvítyngdra barna. Guðbjörg er skólastjóri Listdansskóla Hafnarfjarðar, en þar er boðið upp á nám í klassískum ballet, barnadönsum, hipp hopp og djassdansi.




