Aðalheiður Halldórsdóttir
- StatusDancer, choreographer
- Phone+354 6998052
- Emailadalhall@gmail.com
Description
An English description has not yet been submitted.
Eftir 3 ár í fimleikum hjá Gerplu lá leið Aðalheiðar í Listdansskóla Þjóðleikhússins, síðar íslands, og þar stundaði hún nám til 16 ára aldurs. Fór hún þá til Þýskalands sem gestanemandi við Tanz Akademie Köln. Síðar lá leiðin til Hollands í kóreografíunám við ArtEZ Dansakademie, Arnhem.
Aðalheiður hefur starfað sem dansari, framan af freelance og síðustu ár hjá Íslenska dansflokknum. Við sögu hafa komið fjöldinn allir af okkar bráðskemmtilegu íslensku danshöfundum eins og Ástrós Gunnarsdóttir, Erna Ómarsóttir, Gunnlaugur Egilsson, Halla Ólafsdóttir, Helena Jónsdóttir, Jóhann Freyr, Karen María, Katrín Hall, Lára Stefánsdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Nadía Banine, Ólöf Ingólfsdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir. Af erlendu bergi brotnir eru svo danshöfundar eins og Peter Anderson, Damien jalet, Jo Strömgren, Aleksander Ekman, Didi Veldman, Ina christel Johannssen, André Gingras, Rui Horta, Roberto Olivan og fleiri.
Aðalheiður skipar, ásamt Valgerði Rúnarsdóttur, danstvíeykið Vaðal og hafa þær starfað saman frá árinu 2000 Þær hafa samið fjölda dansverka, m.a. fyrir Íslenska dansflokkinn og Reykjavík dansfestival. Þær voru tilnefndar til Grímunnar 2007 fyrir verk sitt Flest um fátt sem flutt var af Íslenska dansflokknum. Einnig hlaut Aðalheiður tilnefningu til Grímunnar sem dansari ársins fyrir hlutverk sitt í Carmen í uppsettningu LR og Íd.
Aðalheiður hefur einnig kíkt inn í leikhúsheiminn, verið í fimm uppfærslum Íslensku Óperunnar, í leik og sönghlutverkum og í tveimur samstarfsuppfærslum Íd og LR. Aðalheiður lék einnig í Forðist okkur eftir Hugleik Dagsson.

