Íslenski dansflokkurinn
- Sími+354 5880900
- Netfangid@id.is
- Heimasíðahttp://www.id.is/
Ágrip
Íslenski dansflokkurinn er framsækinn nútímadansflokkur skipaður úrvalsdönsurum í hæsta gæðaflokki. Hjá ÍD starfa að jafnaði tíu til fjórtán fastráðnir dansarar, allir með þjálfun í klassískum dansi. Flokkurinn leggur áherslu á að kynna íslenskum áhorfendum metnaðarfull verk og mikilvægustu höfunda í nútímadansi. ÍD leitast einnig eftir samvinnu við fólk af öðrum listsviðum, sérstaklega tónlist.
Flokkurinn hefur unnið með mörgum af fremstu danshöfundum Evrópu auk þess að leggja rækt við íslenska danssköpun með því að setja á svið verk eftir íslenska danshöfunda.
Meðal þeirra erlendu höfunda sem hafa skapað verk fyrir ÍD eru Rui Horta, Jirí Kylián, Didy Veldman, Jo Stromgren, Jochen Ulrich, Richard Wherlock, Itzak Galili, Stijn Celis, Rami Be’er, Jorma Uotinen, Ina Christel Johannessen og Alexander Ekman. Erna Ómarsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Helena Jónsdóttir og Ólöf Ingólfsdóttir eru á meðal margra íslenskra höfunda sem hafa unnið með ÍD
Íslenski dansflokkurinn hefur byggt upp nafn og viðurkenningu alþjóðlegum vettfangi á undanförnum árum. Flokknum hefur verið boðið að sýna í mörgum af helstu leikhúsum og hátíðum erlendis. Samtals hefur ÍD sýnt í 33 löndum, 48 borgun og þremur heimsálfum síðan 2001. Íslenski dansflokkurinn er án efa sú íslenska sviðslistastofnun sem hefur ferðist víðast á síðustu árum
Hér heima sýnir ÍD reglulega í Borgarleikhúsinu sem og að halda reglulegar danssmiðjur til að styðja við bakið á ungum og upprennandi danshöfundum. Einnig hefur flokkurinn staðið fyrir verkefnum til að kynna og efla áhuga á danslistinni hjá ungu fólki. Flokkurinn hefur margoft komið fram á Listahátíð í Reykjavík á undanförnum árum
Dansflokkurinn er sjálfstæð ríkisstofnun og er forstöðumaður hans Katrín Hall, listrænn stjórnandi. Framkvæmdastjóri er Ása Richardsdóttir.


